05. desember 2010 | Kristjana Bergsdóttir
Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar síðastliðið vor gagnrýndi B-listi Framsóknar og óháðra harðlega óstjórn bæjarstjórnarmeirihlutans í fjármálum undanfarin ár þar sem m.a. hafði verið sólundað upphæð sem samsvaraði nærri 250 þús. kr. á hvert mannsbarn á Seltjarnarnesi á aðeins 2 árum. Jafnframt lýsti framboð B-listans því yfir að ekki kæmi að okkar hálfu til greina að leysa fjárhagsvandamál sem bærinn hafði komið sér í með hækkun skatta á bæjarbúa. Ekkert annað framboð lýsti þessu yfir fyrir kosningar.
Sjálfstæðismönnum sveið illa undan þessari gagnrýni og B-listinn fann fyrir miklum hljómgrunn við þennan málflutning, sérstaklega hjá góðum og gegnum Sjálfstæðismönnum. Þetta varð til þess að síðustu daga fyrir kosningar beitti Sjálfstæðisflokkurinn öllu sínu afli til að tryggja að B-listinn kæmi ekki að manni. Sjálfstæðismönnum, sem höfðu ætlað að kjósa B-lista, var skipulega bent á að skila frekar auðu. „Jónmundarandstæðingum“ var bent á að strika út Jónmund og „Ásgerðarandstæðingum“ bent á að strika hana út og ef annað gekk ekki þá benti flokksmaskína Sjálfstæðisflokksins á að betra væri þá að kjósa góða fólkið hjá Neslistanum og Samfylkingunni en B-lista Framsóknar og óháðra. Þetta gekk upp og B-listin fékk aðeins um 7% atkvæða og engan mann. Sjálfstæðisflokkurinn fékk góða kosningu en miklar útstrikanir og auð atkvæði voru óvanalega mörg. Þetta var hin lýðræðislega niðurstaða þrátt fyrir mjög lélega fjármálastjórn hjá bæjarfélaginu á kjörtímabilinu sérstaklega 2007-2009.
Ástæða gagnrýni okkar og áherslu framboðsins á fjármál var að það myndi skaða hagsmuni allra Seltirninga til lengri tíma ef ekki tækist strax að snúa við glórulausri útþenslu í rekstri og framkvæmdum. Skatttekjur í dag eru svipaðar að raungildi og árið 2000 og því þarf að færa rekstrarútgjöld bæjarins niður til þess horfs sem var þá. Það er eina raunhæfa leiðin og verður sennilega ekki einu sinni sársaukafull fyrir þorra bæjarbúa. Jafnframt varaði B-listinn við því að beita klassískum „kratískum“ skattahækkunarviðbrögðum eins og ríkisstjórnin hefur verið að gera. Skattahækkanir munu herða á hnignuninni með því að lækka virði eigna og fæla skattgreiðendur frá búsetu hér á Nesinu.
Nú við afgreiðslu fjárhagáætlunar fyrir 2011 er ljóst hvert bæjarstjórnin stefnir þegar bæði meiri- og minnihluti náðu um það samstöðu að hækka útsvarsálag um 7,3% á bæjarbúa auk hækkunar á fasteignagjöldum og fleiru. Þessi bæjarstjórn velur þá leið að auka álögur á bæjarbúa við afar erfiðar aðstæður í samfélaginu! Það er jólagjöfin okkar í ár. Fróðlegt er fyrir netvædda Seltirninga að horfa á bæjarstjórnarfulltrúana á bæjarstjórnarfundi 1. des. s.l. í fyrstu umræðu ræða þessi mál. Þar kemur athugasemd frá forseta bæjarstjórnar, Guðmundi Magnússyni, um að hann áskilji sér rétt til að leggja fram tillögur fyrir afgreiðslu 2. umræðu um að hækka ekki álögur á bæjarbúa. Gott hjá Guðmundi, þó seint sé, sem þarna tekur vel undir málflutning okkar í B-listanum. Það sem gerist í kjölfarið á fundinum er að allir aðrir bæjarfulltrúar sameinast um að lýsa óánægju sinni með að einhver væri á móti því að skattleggja bæjarbúa meira því það hefði verið komin svo góð „samstaða í bæjarstjórn um það“. Já, þetta er jólagjöfin frá meiri- og minnihluta núverandi bæjarstjórnar til bæjarbúa í ár og eflaust mun þessi bæjarstjórn, vonandi samt áfram með andstöðu Guðmundar, veita okkur fleiri slíkar.
B-listinn fagnar því að hafa eignast skoðanabróður og bandamann innan bæjarstjórnar og býður hann velkominn til frekara samstarfs við okkur til að tryggja sem best hag Seltirninga til framtíðar.
Með ósk um gleðilega jólahátíð
Kristjana Bergsdóttir, oddviti B-lista Framsóknar og óháðra á Seltjarnarnesi
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is