27. maí 2010 | Kristján Þorvaldsson
Á kjördag, hinn 29. maí, gefst kjósendum á Seltjarnarnesi tækifæri til að hverfa frá venjum og velja nýjan listabókstaf í kjörklefanum. B-listi Framsóknar og óháðra hefur undanfarnar vikur barist af krafti og unnið ötullega við að upplýsa Seltirninga um fjármálastöðu bæjarfélagsins. Þessari viðleitni B-lista hefur verið afar vel tekið og margir hafa skoðað stöðuna með þeim gögnum sem liggja fyrir í ársreikningum og á vefsíðu bæjarins. Ég hvet alla Seltirninga til að kynna sér menn og málefni og ennfremur að setja „x“ við B á kjördag.
Virkt íbúalýðræði sem byggist á aukinni þátttöku bæjarbúa í skipulagsmálum er afar mikilvægt svo komist verði hjá deilum bæjaryfirvalda við íbúa á þeim vettvangi. Bærinn þarf að móta skýra heildarstefnu í skipulagsmálum til framtíðar. Huga þarf sérstaklega að umferðarmálum bæjarins þá einkar umferðarhraða á stofnbrautum svo og fjölgun vistgatna til að tryggja öryggi vegfarenda.
Þjónustugjöld leikskóla á Seltjarnarnesi eru umtalsvert hærri en tíðkast í sveitarfélögunum í kring. Ljóst er að koma þarf betur til móts við barnafjölskyldur með sanngjarnari þjónustugjöldum. Einnig þarf að standa vörð um að barnmargar fjölskyldur njóti áfram sanngjarnra systkinaafslátta. Flestum ætti að vera í fresku minni hækkun á síðasta ári sem síðar var dregin til baka.
Góð fjárhagsáætlun er grundvöllur fyrir farsælan rekstur og afar brýnt er að fara rækilega ofan í kjölinn á gerð fjárhagsáætlunar. Tryggja þarf aðkomu starfsnefnda bæjarins að þessari vinnu, í auknum mæli, ásamt því að gefa bæjarbúum kost á þátttöku.
Til að ná markmiðum um gegnsæja og lýðræðislega stjórnsýslu er brýnt að bæjarráði verði komið á fót til að fara með framkvæmda- og fjármálastjórn ásamt embættismönnum bæjarins. Setja þarf skýra upplýsingastefna fyrir Seltjarnarnes sem miðar að óheftu aðgengi bæjarbúa að upplýsingum um stöðu mála.
Kristján Þorvaldsson, skipar 2. sætið á lista Framsóknar og óháðra.
Grein birtist í Morgunblaðinu 27. maí 2010 og á mbl.is.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is