Framsókn Seltjarnarnesi á Facebook

Framsókn Seltjarnarnesi á Twitter

Blog Framsóknar Seltjarnarnesi



27. maí 2010

Fræðslukvöld um skipulagsmál

B-listi hélt opinn fund um skipulagsmál miðvikudaginn 26. maí á kosningaskrifstofu sinni að Austurströnd 3. Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og fyrrum bæjarfulltrúi hélt erindi um skipulagsmál á Seltjarnarnesi.

Siv fjallaði um stór skipulagsmál sem hafa verið umdeild. Allt frá baráttunni um vestursvæðin, yfir í svæðin við Hrólfsskálamel og Valhúsaskóla til nýjustu baráttunnar um svæðið við Bygggarða. Þessi mál hafa öll leitt til deilna milli meirihluta sjálfstæðismanna og íbúa á Seltjarnarnesi og hafa íbúar á þessum svæðum oft á tíðum myndað með sér bandalag til að ná fram rétti sínum.

Ólafur Egilssin, formaður skipulagsnefndar, mætti á fundinn og gerði grein fyrir nýjustu málum. Fjörugar umræður voru á fundinum og þótti hann takast afar vel.

Frá fræðslukvöldi B-lista um skipulagsmál

Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is