26. maí 2010
B-listinn hélt opinn fræðslufund um stöðu fjármála Seltjarnarness 25. maí síðastliðinn. Mæltist fundurinn vel fyrir og var afar fróðlegt að hlýða á erindi Atla Árnasonar læknis um samantekt helstu lykiltalna í rekstri sveitarfélagsins.
Á fundinum kom greinilega fram hvert hefur stefnt síðustu misseri í rekstri og tapið öllum augljóst. Framsókn og óháðir hafa bent ríkulega á þetta í aðdraganda kosninga enda full þörf á. Viðbrögð sjálfstæðismanna við þessari umræðu hafa verið dræm og skuldinni einna helst skellt á viðhaldsaðgerðir, sem fyrir löngu hefði átt að framkvæma í heild eða hluta, eða sumarvinnu ungmenna.
Athygli vakti á fundinum að þegar bærinn er borinn saman við Garðabæ kemur í ljós að Garðabær, sem hefur yfir tvöfalt fleiri íbúa, er langt undir Seltjarnarnesi þegar kemur að launakostnaði bæjarstjóra og bæjarfulltrúa. Þetta er hluti af hinni útþöndu yfirbyggingar Seltjarnarness.


Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is