Framsókn Seltjarnarnesi á Facebook

Framsókn Seltjarnarnesi á Twitter

Blog Framsóknar Seltjarnarnesi



25. maí 2010

Þöggun meirihlutans rofin

Þöggun meirihluta sjálfstæðismanna um fjármál bæjarins er rofin. Þá svíður réttmæt gagnrýni byggð á niðurstöðum ársreikninga bæjarins um meðferð eigna bæjarbúa á kjörtímabilinu. Því miður fyrir Seltirninga benda viðbrögð þeirra og svör ekki til þess að þeir ætli að taka nokkra ábyrgð á þessari slæmu meðferð fjármuna á kjörtímabilinu með 953 milljón króna tapi síðustu tveggja ár. Fyrir okkur sem búa hér þýðir þetta að þeir ætla ekki að læra neitt heldur stinga höfðinu í sandinn.

Meirihlutinn fór á eyðslufyllirí með gífurlegri kostnaðaraukningu á rekstri bæjarfélagsins á kjörtímabilinu. Þeim fannst þeir vera með alla vasa fulla af peningum á pappírunum eftir að hafa bókfært 1693 milljóna kr. hagnað af landsölu að fullu í reikninga bæjarins 2006. Þeir hirtu því miður ekki um að tryggja þessi verðmæti betur en raun varð á og þess vegna afskrifa þeir nú 349 milljónir kr. af því. Því miður eigum við eftir að sjá meira slíkt á næstu árum. Þetta köllum við B-lista menn að klúðra fjármálum enda hafa nettóskuldir á hvern bæjarbúa á kjörtímabilinu vaxið úr 21 þús. kr. á mann í 230 þús. kr. samkvæmt þeirra eigin tölum sem birtar eru á vefsíðu bæjarins.

Er þetta ábyrg fjármálastjórn?

Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is