Framsókn Seltjarnarnesi á Facebook

Framsókn Seltjarnarnesi á Twitter

Blog Framsóknar Seltjarnarnesi



19. maí 2010 | Framsókn Seltjarnarnesi

Tómstunda-, félags- og menningarmál

Í tómstunda-, félags- og menningarmálum vill B-listinn tryggja að íþróttaaðstaða til skipulagðrar íþróttastarsemi svo og útivistar sé til fyrirmyndar. B-listinn vill að Félagsheimili Seltjarnarness verði að miðstöð tómstunda fyrir unga sem aldna Seltirninga. B-listinn vill efla dagvistunarúrræði fyrir aldraða Seltirningar. B-listinn vill einnig standa vörð um ýmis menningarverðmæti á Seltjarnarnesi.

Helstu áherslur B-lista:

  • Tryggt verði að aðstaða til íþróttaiðkunar og útivistar, bæði fyrir skipulagt íþróttastarf og fyrir almenning, sé til fyrirmyndar.
  • Leitast við að hækka tómstundastyrki og lækka almennar gjaldskrár fyrir tómstundir og gera þannig sem flestum börnum kleift að stunda fjölbreyttar tómstundir.
  • Félagsheimili Seltjarnarness verði miðstöð tómstunda og starfrækt fyrir alla íbúa bæjarins, unga sem aldna.
  • Tryggð verði fjölbreytt sumarstörf fyrir nemendur elstu bekkja grunnskóla svo og aðra námsmenn.
  • Megináhersla á sumarstörf skal vera á formi hagnýtra verkefna á vinnumarkaði svo sem almenn fræðsla um atvinnu- og fjármál og samfélagslegar skyldur.
  • Átak verði gert til að aðstoða atvinnulausa aftur út á vinnumarkaðinn með fræðandi námskeiðum og starfsþjálfun.
  • Öldruðum verði gert kleift að búa á eigin heimilum eins lengi og kostur er.
  • Hlutdeild bæjarins í hjúkrunarheimilinu Eir verði metin í samræmi við þarfir.
  • Aldraðir Seltirningar geti notið líkamsræktar og sundiðkunar án þess að þurfa að greiða fyrir.
  • Efling dagvistarúrræða fyrir aldraða Seltirninga.
  • Sérstökum menningarsjóði verði komið á fót til að aðstoða einstaka viðburði og verkefni á vegum ungs fólks.
  • Hugað verði að menningarverðmætum á Seltjarnarnesi svo sem stríðsminjum og fleira.

Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is