Framsókn Seltjarnarnesi á Facebook

Framsókn Seltjarnarnesi á Twitter

Blog Framsóknar Seltjarnarnesi



24. maí 2010 | Framsókn Seltjarnarnesi

Svör við spurningum Gróttu

Forsvarsmenn Íþróttafélagsins Gróttu leggja neðangreindar spurningar fyrir öll framboð sem bjóða fram við sveitarstjórnarkosningar 29. maí 2010. Svörin verða birt á heimasíðu félagsins www.grottasport.is.

Spurning 1

Hver er stefna þíns flokks í málum Íþróttafélagsins Gróttu. t.d varðandi þann styrk sem bæjarfélagið veiti félaginu. Grótta sinnir gríðarlega mikilvægu forvarnar- og uppbyggingarstarfi á Seltjarnarnesi.

Eðlilegt er að bæjarfélagið geri þjónustusamninga við íþróttafélög sem starfa innan bæjarfélagsins um þá þjónustu sem bæjaryfirvöld og íþróttafélögin verða sammála um að æskilegt sé að íþróttafélögin sinni fyrir bæjarfélagið hverju sinni. Markmið slíkra samninga á að vera hluti af almennri heilsuvakningu allra aldurshópa í samfélaginu með hæfilegri blöndun við keppnisíþróttir. Sérstaklega þarf að tryggja aðgengi og þátttöku barna og ungmenna að fjölbreyttu íþróttastarfi án þess að efnahagur foreldra hindri þátttöku þeirra. Tómstundastykrur barna og ungmenna er þáttur í því. B-listi Framsóknar og óháðra leggur því áherslu á áframhaldandi stuðning við Gróttu og það góða starf sem félagið hefur unnið.

Spurning 2

Eitt af helstu baráttumálum félagins er stækkun á fimleikahúsi,núverandi aðstaða er löngu sprungin og heftir núverandi aðstaða uppgang deildarinnar.
Stækkun fimleikahúss var lofað árið 2011 en við fjármálakreppuna var henni frestað um óákveðinn tíma. Hver er stefna þíns flokks varðandi stækkun á fimleikahúsi?

Forgangsmál næsta kjörtímabils er að tryggja aftur fjárhag og rekstur bæjarins svo hægt verði til lengri tíma að tryggja öflugan stuðning við íþróttalíf hér á Nesinu. Of skuldsett bæjarfélag verður lítil stoð fyrir íþróttafélögin. Stækkun fimleikahúss á að gerast í samvinnu við Gróttu sem og samkomulag um forgangsröðun innan Gróttu á fjárhagslega mögulegum verkefnum m.t.t. annarra brýnna verkefna bæjarfélagsins.

Spurning 3

Ein af kröfum afreksmannastefnu í meistaraflokkum félagsins, sem eru fyrirmyndir hinna yngri og andlit félagsins útávið er að hafa góða lyftingaaðstöðu. Félagið hefur ekki aðgang að svona aðstöðu nema í gegnum World Class og Grótta þarf að greiða töluverða fjármuni til þess. Hvaða leiðir sér þinn flokkur til að vinna að betri og ódýrari lausn svo afreksmenn félagsins og aðrir iðkendur hefðu aðgang að lyftingaaðstöðu?

Lyftingaaðstaða afreksmanna þarf ekki að vera kostnaðarsöm og ekki þörf á íburði í þeim efnum samanber „Jakaból“. Talsvert er nú af ónotuðu húsnæði, skemmum og öðru í bænum. Eðlilegt er að Grótta hafi frumkvæði að forgangsröðun verkefna á þessu sviði og vinni í samvinnu við bæjarfélagið að ódýrum lausnum á þessum vanda sem spara peninga til lengri tíma. Einnig er eðlilegt að leita að styrktaraðilum til að leysa slík sértæk verkefni fyrir afreksmenn.

Spurning 4

Hver er stefna ykkar í íþróttum hér á Seltjarnarnesi?

Almennt lítur B-listinn á íþróttir sem mikilvægt tæki til að bæta félagslega, andlega og líkamlega líðan Nesbúa. Gott almennt íþróttastarf byggt á góðum fjárhagslegum grunni eykur lífsgæði í bæjarfélaginu með almennri heilsueflingu. Íþróttastarf er mikilvægt fyrir alla aldursflokka því lengi býr að fyrstu gerð og því þarf að leggja sérstaka áherslu á slíkt starf fyrir yngstu kynslóðirnar. Fjölbreytt íþróttastarf og valmöguleikar til íþróttaiðkunar eru mikilvægir þættir í þjónustu við bæjarbúa. Þannig ræður notandinn, eftir áhugasviðum, getu og þörfum, mestu um notkun eðlilegs fjármagns af hálfu bæjarins á hvern einstakling. Íþróttastarf í bæjarfélaginu mun áfram sem hingað til byggjast talsvert á sjálfboðaliðum, foreldrum og öðru áhugafólki og skipulögðum félagssamtökum þeirra eins og Grótta er gott dæmi um. Þetta þarf bæjarfélagið að styðja við með eðlilegum gegnsæjum samningum um markmið, stefnu og gagnkvæman stuðning, öllum bæjarbúum til hagsbóta. Framsókn og óháðir leggja áherslu á að Gróttu verði áfram unnt að standa að öflugu íþróttastarfi sem eflir heilsu og sjálfsmynd bæjarbúa.

Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is