19. maí 2010 | Framsókn Seltjarnarnesi
Í skipulags-, umferðar- og umhverfismálum er lögð höfuðáhersla á íbúalýðræði og þátttöku íbúa. B-listinn vill hverfa frá stríði við bæjarbúa vegna skipulagsmála og vinna mál í sátt og samlyndi. B-listinn vill standa vörð um einstakar náttúruperlur sem eru á Nesinu þ.á m. Valhúsahæðina og svæðin vestan Nesstofu. B-listinn vill einnig taka til skoðunar umferðarhraða á stofnbrautum og möguleika á fjölgun vistgatna. B-listinn vill að bærinn verði í fararbroddi hvað varðar umhverfismálum og stofnanir vinni á markvissri umhverfisstefnu.
Helstu áherslur B-lista:
- Auka þátttöku íbúa í skipulagsmálum og nýta nýjustu tækni, m.a. rafrænt Seltjarnarnes, við upplýsingagjöf, ábendingar og ákvarðanatöku.
- Ná fram virku íbúalýðræði.
- Standa vörð um útivistarsvæði og náttúruperlur, þar á meðal Valhúsahæð og svæðiin vestan Nesstofu, og stuðla að varðveislu þeirra.
- Stóraukið átak í gerð deiliskipulags einstakra svæða og endurskoðun skipulags fyrir eldri hverfi í góðri sátt og samvinnu við íbúana.
- Ekki ráðast að forsendum fyrirliggjandi byggðar.
- Samgöngur við opinberar byggingar, svo sem íþrótta- og skólamannvirki, bættar til muna og umferðaöryggi gangandi og akandi vegfarenda tryggt.
- Umferðarhraði á stofnbrautum verði takmarkaður og vistgötum verði fjölgað í bæjarfélaginu sérstaklega þar sem börn eru á ferð.
- Bærinn verði í fararbroddi í umhverfismálum og stofnanir hans vinni á grundvelli stefnumörkunar sem unnin er með starfsmönnum og íbúum.