19. maí 2010 | Framsókn Seltjarnarnesi
Í fræðslu- og uppeldismálum vill B-listinn að skólar bæjarins verði ávallt í fararbroddi hvað varðar þjónustu og aðbúnað. B-listinn vill að skólastefna bæjarins verði sífellt í mótun með innleggi frá nemendum, foreldrum og starfsfólki. B-listinn vill til lengri tíma opna leikskóla bæjarins fyrir börn frá 9 mánaða aldri. B-listinn berst fyrir að leikskólagjöld verði til samræmis við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. B-listinn vill að sett sé upp öflug aðgerðaráætlun vegna eineltis- og agamála og byggð á samræmdu kerfi. B-listinn vill að Tónlistarskólinn sinni þörfum bæjarbúa.
Helstu áherslur B-lista:
- Skólar á Seltjarnarnesi verði ávallt í fararbroddi hvað varðar þjónustu og aðbúnað svo og fagleg vinnubrögð.
- Skólastefna bæjarins skal gangast undir virkt endurmat og byggð á innleggi nemenda, foreldra og starfsfólks.
- Langtímamarkmið bæjarins verði að opna leikskóla fyrir börn frá 9 mánaða aldri.
- Dvalartími barna sé í samræmi við aldur þeirra og fari ekki fram úr hófi.
- Leikskólagjöld til samræmis við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og þrepaskipt gjaldskrá skoðuð fyrir mismunandi aldur barna.
- Leitast verði við að barnmargar fjölskyldur njóti sanngjarnra systkinaafslátta.
- Einstæðir foreldrar og foreldrar í námi njóti afsláttar af leikskólagjöldum.
- Skólamáltíðir verði niðurgreiddar fyrir börn í leik- og grunnskóla og tryggt verði að markmiðum Manneldisráðs Íslands er varða gæði matar sé fullnægt.
- Skólalóðum grunn- og leikskóla skal haldið við með reglulegu millibili.
- Huga verði sérstaklega að umferðaröryggi við skólalóðir.
- Tónlistarskólinn uppfylli helstu þarfir bæjarbúa hvað varðar tónlistanám.
- Í leik- og grunnskóla verði öflug aðgerðaráætlun vegna eineltis- og agamála, byggð á samræmdu kerfi, svo tryggt sé að þessi mál fái bestu mögulega úrlausn.