16. maí 2010 | Framsókn Seltjarnarnesi
Stefnumál B-lista skiptast í fjóra meginflokka.
Í fjármálum, rekstri og stjórnsýslu er helsta áhersla lögð á gegnsæ og lýðræðisleg vinnubrögð. B-listinn vill einnig að íbúar hafi aðkomu að stórum og umdeildum málum. B-listinn vill skerpa á gerð fjárhagsáætlunar og að útkoman verði raunsæl áætlun þvert á áætlanir fyrri ára. B-listinn vill að íbúar geti fengið óheftan aðgang að öllum upplýsingum um rekstur bæjarins. B-listinn vill ekki ógna sjálfstæði Seltjarnarness með nokkrum hætti og vill stuðla að áframhaldandi sjálfstæði þess.
Í skipulags-, umferðar- og umhverfismálum er lögð höfuðáhersla á íbúalýðræði og þátttöku íbúa. B-listinn vill hverfa frá stríði við bæjarbúa vegna skipulagsmála og vinna mál í sátt og samlyndi. B-listinn vill standa vörð um einstakar náttúruperlur sem eru á Nesinu þ.á m. Valhúsahæðina og svæðin vestan Nesstofu. B-listinn vill einnig taka til skoðunar umferðarhraða á stofnbrautum og möguleika á fjölgun vistgatna. B-listinn vill að bærinn verði í fararbroddi hvað varðar umhverfismálum og stofnanir vinni á markvissri umhverfisstefnu.
Í fræðslu- og uppeldismálum vill B-listinn að skólar bæjarins verði ávallt í fararbroddi hvað varðar þjónustu og aðbúnað. B-listinn vill að skólastefna bæjarins verði sífellt í mótun með innleggi frá nemendum, foreldrum og starfsfólki. B-listinn vill til lengri tíma opna leikskóla bæjarins fyrir börn frá 9 mánaða aldri. B-listinn berst fyrir að leikskólagjöld verði til samræmis við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. B-listinn vill að sett sé upp öflug aðgerðaráætlun vegna eineltis- og agamála og byggð á samræmdu kerfi. B-listinn vill að Tónlistarskólinn sinni þörfum bæjarbúa.
Í Tómstunda-, félags- og menningarmálum vill B-listinn tryggja að íþróttaaðstaða til skipulagðrar íþróttastarsemi svo og útivistar sé til fyrirmyndar. B-listinn vill að Félagsheimili Seltjarnarness verði að miðstöð tómstunda fyrir unga sem aldna Seltirninga. B-listinn vill efla dagvistunarúrræði fyrir aldraða Seltirningar. B-listinn vill einnig standa vörð um ýmis menningarverðmæti á Seltjarnarnesi.
Nánar má lesa um hvern flokk fyrir sig.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is