27. mars 2010 | Framsókn Seltjarnarnesi
Í sveitarstjórnarkosningum 26. maí 1974 hlaut Framsóknarflokkurinn 197 atkvæði af 1276 atkvæðum eða um 15,4%. Framsókn fékk einn bæjarfulltrúa og hlaut Njáll Þorsteinsson, oddviti listans, sæti í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkur hlaut 5 fulltrúa í bæjarstjórn en F Listi vinstri manna hlaut 1. Kjörsókn var um 90,2 %.
Í kosningum 21. maí 1978 tók Framsóknarflokkurinn þátt í framboði sameiginlegs lista undir merkjum H Lista vinstri manna og óháðra. H listinn hlaut 506 atkvæði af 1414 atkvæðum eða 35,8% og 2 bæjarfulltrúa. Oddviti listans, Guðmundur Einarsson, kom frá Framsóknarflokknum. Sjálfstæðismenn hlutu 860 atkvæði og 5 bæjarfulltrúa. Kjörsókn var 88,5%.
Í kosningum 22. maí 1982 hlaut Framsóknarflokkurinn 246 atkvæði af 1871 eða 13,2%. Framsókn hlaut 1 bæjarfulltrúa og varð oddviti listans Guðmundur Einarsson bæjarfulltrúi annað kjörtímabilið í röð. Sjálfstæðisflokkur fékk 5 bæjarfulltrúa og Alþýðubandalag 1. Kjörsókn var 89,7%.
Í kosningum 31. maí 1986 fékk Framsóknarflokkurinn 282 atkvæði af 2172 eða um 13%. Framsókn hlaut 1 bæjarfulltrúa og hlaut oddviti listans Guðmundur Einarsson sæti í bæjarstjórn í þriðja skipti. Sjálfstæðisflokkur hlaut 4 bæjarfulltrúa en Alþýðubandalag 2. Kjörsókn var 82,6%.
Í kosningum 26. maí 1990 bauð Bæjarmálafélag Seltjarnarness fram Neslista í fyrsta sinn. Oddviti listans var framsóknarmaðurinn Siv Friðleifsdóttir. Neslistinn hlaut 819 atkvæði af 2461 eða 33,3%. Neslistinn fékk 2 bæjarfulltrúa en Sjálfstæðisflokkur fékk 5. Kjörsókn var 85%.
Í kosningum 28. maí 1994 var Neslistinn boðinn fram í annað sinn. Siv Friðleifsdóttir leiddi listann og hlaut hann 1164 atkvæði af 2650 eða 43,9%. Neslistinn hlaut 3 bæjarfulltrúa en Sjálfstæðisflokkur 4. Kjörsókn var 84,1%.
Í kosningum 23. maí 1998 var Neslistinn boðinn fram og hlaut hann 915 atkvæði af 2708 eða 33,8%. Neslistinn hlaut 2 bæjarfulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn 3. Kjörsókn var 82,7%.
Í kosningum 25. maí 2002 fékk Neslistinn 1062 atkvæði af 2735 eða 38,8%. Framsóknarmaðurinn Guðrún Helga Brynleifsdóttir leiddi listann. Neslistinn fékk 3 bæjarfulltrúa en sjálfstæðismenn 4. Kjörsókn var 81,4%.
Í kosningunum 27. maí 2006 bauð Neslistinn fram og hlaut 817 atkvæði af 2571 eða 31,8%. Guðrún Helga Brynleifsdóttir leiddi listann. Neslistinn fékk 2 menn í bæjarstjórn en Sjálfstæðisflokkur fékk 5. Kjörsókn var 78,3%.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi - 470510-0990 - xbnes@xbnes.is - mail.xbnes.is